Tryggvi kom fyrstur eða 3:44, hann var 3245 gr (13 merkur) og 50 cm. Heiðdís Emma kom svo 7 mín síðar eða 3:51, hún var 3410 gr (14 merkur) og 51,5 cm.
Foreldrar okkar eru Unnur ´83 og Sigurður Garðar ´77. Mamma er úr Garðabænum og pabbi er frá Ólafsfirði. Við fjölskyldan eigum heima í Kópavogi.
Foreldrar mömmu heita Bergþór og Gunnar, þau eiga heima í Garðabænum. Foreldrar pabba heita Ólöf og Barði, þau búa á Ólafsfirði. Við eigum síðan rosalega stóra og yndislega fjölskyldu.
Við vorum skírð þann 4. september 2005 í Garðakirkju. Presturinn sem skírði okkur heitir Sr. Bolli Bollason. Skírnavottar okkar voru ömmur okkar og afar - Bergþóra, Ólöf, Gunnar og Barði.
Þið sem vitið ekki lykilorðið hafi þá endilega samband við okkur og við sendum ykkur lykilorðið um hæl!
Nöfnin okkar merkja...
Tryggvi
Tryggvi: Nafn þetta er leitt af lýsingarorðinu
"tryggur" sem merkir trúr, - traustur.
Heiðdís Emma
Heiðdís: Nafn þetta er myndð af forliðnum"Heið" sem merkir ýmist sæmd, tign, bjartur, skær og viðliðnum "Dís" sem merkir heilladís.
Emma: Nafn þetta kemur upphaflega úr þýsku þar sem það var stytting á hinum ýmsu nöfnum sem hófust á "Erm-" sem merkir iðin.
TWINS
There's two to wash, there's two to dry
There's two who argue, there's two who cry
one's in the mud having ball,
The other holds a crayon, another marked wall,
Some days seem endless, my patience grows thin
Why was I chosen to be a mother of twins?
The answer comes clear at the end of each day,
As I tuck them in bad and to my I say
There's two to kiss, there's two to hug,
And best of all, there's two to love.
Til ykkar!
Áður en þið voruð til þráðum við ykkur.
Áður en þið komuð í heiminn elskuðum við ykkur.
Áður en þið höfðuð lifað eina stund hefðum
við fúslega dáið fyrir ykkur.
Þið ert kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til.
Það er erfitt að vera barn.
Fyrstu árin þarf maður að
læra að ganga og tala.
Þegar maður er loksins
búinn að því.
Þá er manni skipað að
þegja og sitja kyrr.
Börn eru eins og svampar.
Þau sjúga í sig alla orku manns,
og geta gert út af við fólk.
En ef maður þrýstir þeim fast að sér,
Kemur það allt til baka.
Elsku Tryggvi og Heiðdís Emma!
Ást okkar verður með ykkur
hvenær sem þið þarfnast hennar.
Ást okkar verður með ykkur
þegar gleðin ber ykkur ofurliði.
Ást okkar verður með ykkur
þegar erfileikarnir eru að buga ykkur.
Ást okkar verður með ykkur
þegar þið óttist lífið.
Ást okkar verður með ykkur
í dag og alla daga.
Ykkar foreldrar!







